Jafnlaunastefna
Jafnlaunastefna SÍ hf (Serrano)
Tilgangur og markmið
Jafnlaunakerfi Serrano byggir á staðli ÍST 85:2012 á grundvelli 7. gr. laga nr. 150/2020 um jafnan rétt kynjanna. Tilgangur og markmið jafnlaunastefnu Serrano er að stuðla að jafnrétti allra kynja í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt þeirra og að fylgja þeirri meginreglu að öllum kynjum séu greidd jöfn laun og að þau njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Stefnan nær til alls starfsfólks SÍ hf.
Serrano leggur áherslu á jafnrétti kynjanna og að nýta til jafns styrkleika alls starfsfólks þannig að hæfileikar og færni alls mannauðs njóti sín sem best og er það skjalfest með stefnu þessari. Stefna Serrano er að vera vinnustaður þar sem öll eru metin að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu og að öll hafi jöfn tækifæri til þess að axla ábyrgð og sinna verkefnum óháð kyni.
Sí hf skuldbindur sig til að:
- Fylgir lögum, reglum og samningum sem snerta jafnréttismál og gilda á hverjum tíma og skuldbindur sig til að stuðla að stöðugum umbótum á jafnlaunakerfinu.
- Að sköpuð sé umgjörð um jafnlaunastefnuna þannig að stefnan sé innleidd, skjalfest og viðhaldið.
- Að markmið stefnunnar verði rýnd reglulega og sé kynnt öllu starfsfólki.
- Að stefnan sé aðgengileg almenningi á vefsíðu Serrano.