Kjúklinga Burrito - 969 kr.
Kjúklingur, Hrísgrjón og þitt val af grænmeti, baunum, osti og sósum.
BBQ Burrito - 969 kr.
Kjúklingur, Hrísgrjón, Svartar baunir, Fersk salsa, Maís, Kál, BBQ sósa, Muldar nachos flögur og Sýrður rjómi.
Spicy Cajun Burrito - 969 kr.
Kjúklingur, Sterk Cajun Blanda, Ristuð Maís Salsa, Hrísgrjón, Fersk Salsa, Kál og Chipotle Sósa.
Fajitas Burrito - 1.159 kr.
Tvöfaldur Skammtur af Kjúklingi, Hrísgrjón, Steikt Grænmeti, Maís, Fersk Salsa, Ostur og Sýrður Rjómi.
Grænmetis Burrito - 969
Ferskt Guacamole, Hrísgrjón og þitt val af Grænmeti, Baunum, Osti og Sósum.
Taílenskur Burrito - 1.159
Tvöfaldur Skammtur af kjúklingi, hvítkál, hrísgrjón, maís, hvítur laukur, vorlaukur, Satay hnetusósa og fersk salsa.
Nautakjöts Burrito - 969 kr.
Nautakjöt, Hrísgrjón og þitt val af grænmeti, baunum, osti og sósum.
Nautahakks Burrito - 969 kr.
Nautahakk, Hrísgrjón og þitt val af grænmeti, baunum, osti og sósum.
Grískur Burrito - 1.119 kr.
Kjúklingur, hrísgrjón, steikt grænmeti, maís, fersk salsa, Tzatziki jógúrt sósa, Feta ostur og kál.
Kjúklinga Quesadilla - 999 kr.
Kjúklingur, ostur og þitt val af grænmeti, baunum og sósu.
BBQ Quesadilla - 999 kr.
Kjúklingur, ostur, steikt grænmeti, svartar baunir, nachos og BBQ sósa. Sýrður rjómi fylgir með.
Nautahakks Quesadilla - 999 kr.
Nautahakk, ostur og þitt val af grænmeti, baunum og sósu.
Grænmetis Quesadilla - 999 kr.
Ostur og þitt val af grænmeti, baunum og sósu.
Kjúklinga Nachos - 969 kr.
Nachos, kjúklingur, ostur og þitt val af grænmeti, baunum og sósum.
Nautahakk Nachos - 969 kr.
Nachos, nautahakk, ostur og þitt val af grænmeti, baunum og sósum.
- Gosflaska 0,5l - 219
- Kristall+, Orka 0,5l - 249
- Sól Safi - 249
- Frissi Fríski - 129
Serrano Kringlunni
N1 Stöðin Bíldshöfða
551-1754
Opið: Mán-Fös: 10-23.30, Lau: 11-23.30, Sun: 12-23.30
Kort af staðnum
Serrano Bíldshöfða
Stjörnutorg, Kringlan
104 Reykjavík
551-6040
Opið: Mán-Mið: 11-19, Fim: 11-21, Fös: 11-19.30, Lau: 11-18.30, Sun: 12-18
Kort af staðnum
Serrano Hringbraut
N1 Hringbraut 12
101 Reykjavík
551-2425
Opið: Mán-Fim: 10-23.30, Fös: 10-04, Lau: 11-04, Sun: 12-23.30
Kort af staðnum
Hvað bíður þín á Serrano?
Í mjög stuttu máli: Gómsætur mexíkóskur matur sem er bæði hollur og ódýr.
Í stuttu máli: Bragðgóður skyndibiti sem þú velur af matseðli eða setur saman eftir eigin höfði og við útbúum í einum grænum. Ef þú ert ekki á hraðferð þá geturðu sest niður og borðað matinn hjá okkur. Þú getur jafnvel fengið þér einn bjór með matnum og hlustað á suður-ameríska tónlist en hvortveggja er í boði á völdum stöðum.
Fyrir áhugasama: Matseðilinn er ótrúlega fjölbreyttur en á sama tíma einfaldur. Þú velur á milli þriggja rétta; burrito, quesadilla eða nachos en möguleikarnir á því hvernig þú setur þessa rétti saman eru nær óteljandi. Við leggjum mikið upp úr því að allt sé sem ferskast. Þess vegna undirbúum við allt hráefni jafnóðum og gerum allar sósur frá grunni á staðnum. Við útbúum matinn fyrir þig á örskots stundu - en það er líka það eina sem maturinn á Serrano á sameiginlegt með hefðbundnum skyndibita; að hann er fljótlegur.
Ef þú ert grænmetisæta eða vegan þarftu ekki að vera í vafa um það hvort maturinn henti þér því allt hráefnið í afgreiðsluborðinu er vel merkt.
Fyrir enn áhugasamari: Má ekki bara bjóða þér í heimsókn til okkar?
Hugmyndin að Serrano kviknaði upphaflega þegar við vorum nýútskrifaðir stúdentar á bakpokaferðalagi um Suður-Ameríku. Við vorum báðir skiptinemar á þessum slóðum og annar okkar bjó líka um tíma í Mexíkó þar sem hann kolféll fyrir mexíkóskri matargerð.
Það var þó ekki fyrr en við lukum háskólanámi að við létum drauminn um mexíkóskan veitingastað rætast. Þegar við opnuðum fyrsta Serrano staðinn í Kringlunni árið 2002 höfðum við lagt mikla vinnu í að þróa uppskriftir sem sameinuðu allt það besta úr mexíkóskri matargerð. Útkoman varð einfaldur en fjölbreyttur matseðill sem er samt stöðugt í þróun.
Nú eru sex Serrano staðir á Íslandi og einn Stokkhólmi. Og okkur dreymir um að opna fleiri.
Það sem hvetur okkur áfram er ekki bara ást okkar á mexíkóskum mat heldur finnst okkur vanta veitingastaði sem selja hollan, næringarríkan og bragðgóðan skyndibita á góðu verði. Sjálfir borðum við nánast daglega á Serrano og höfum gert það frá því að við opnuðum fyrsta staðinn- einfaldlega vegna þess að okkur finnst maturinn okkar æði!
Við vonum að þú sért sammála okkur.
Vertu velkominn á Serrano.
Einar og Emil, eigendur Serrano
Orðið burrito þýðir bókstaflega "litli asni" á spænsku.
Í mexíkóskri þjóðsögu segir frá manni sem hét Juan Mendez og seldi mat á götuhornum borgarinnar Ciudad Juarez í Chihuahua héraði. Hann fór á milli staða á vagni sem var dreginn áfram af litlum asna. Til að halda matnum heitum greip hann til þess ráðs að vefja honum í stórar tortillur. Þetta sló samstundis í gegn og kom fólk langt að til að prófa þennan nýja rétt sem var þá kallaður matur burrito-ins, eða matur litla asnans. Nafnið festist við réttinn, sem í dag er þó einfaldlega kallaður burrito.
Í dag er burrito hefðbundinn matur í Ciudad Juarez, þar sem hann er seldur á veitingastöðum og þúsundum lítilla matsöluvagna. Þar borðar fólk burrito jafnt í morgunmat, hádegismat og kvöldmat. Þrátt fyrir að burrito sé eitt vinsælasta dæmið um mexíkóska matargerð utan Mexíkó, hefur burrito-inn ekki verið svo algengur matur fyrir utan norðurhluta landsins, þó hann sé nú farinn að verða æ algengari um allt landið.
Sú tegund af burrito-um sem við seljum á Serrano á ættir sínar að rekja til Mission hverfisins í San Francisco, en þar hafa margir innflytjendur frá Mexíkó sest að. Á svokölluðum taqueria veitingastöðum hefur burrito-hugmyndin verið að þróast allt frá sjöunda áratugnum. Taqueria staðirnir voru stofnaðir til að selja tacos en vinsældir burrito-a hafa breytt stefnu þeirra að miklu leyti.
Í Mexíkó eru baunir, hrísgrjón eða kjöt yfirleitt eina fyllingin og tortillan er minni. Í Bandaríkjunum samanstendur fyllingin yfirleitt af fjölbreyttari blöndu hráefna, svo sem hrísgrjónum, baunum, káli, salsa, kjöti, guacamole, osti og sýrðum rjóma. Fyrir vikið er burrito-inn talsvert veglegri. Álpappírinn er líka einkennandi fyrir Mission burrito-ana, en hann heldur hita á matnum og heldur burrito-inum saman. Undanfarin ár hafa svo vinsældir burrito-a breiðst út um öll Bandaríkin.
"Hafðu það gott" er ekki bara innantómt slagorð. Það er hugsjón okkar í hnotskurn. Við viljum að þér líði vel. Þess vegna seljum við ekki ruslfæði. Við matreiðum réttina okkar einungis úr hágæða hráefni sem við vinnum á staðnum. Meira að segja sósurnar eru unnar frá grunni úr fersku grænmeti, kryddjurtum og góðum olíum. Sykur og salt er í lágmarki en trefjar og prótín í hámarki. Útkoman er girnilegur og fitulítill matur. Matur sem þú getur borðað með góðri samvisku.
Réttirnir okkar eru bæði matarmiklir og saðsamir og við fullyrðum að þeir séu það hollir að þú getir borðað hjá okkur alla daga vikunnar. Og það án þess að einkaþjálfarinn refsi þér með 50 auka magaæfingum!
Serrano er meira en skyndilausn á hungri. Þú endist lengur á matnum okkar og þér líður líka vel af honum. Við notum orkuríkt hráefni á borð við hrísgrjón og baunir, bæði svartar og pinto. Hráefni sem gefur þér kraft til að takast á við verkefni dagsins. Kannanir sýna líka að baunirnar eru góðar fyrir meltinguna, geta lækkað kólestroll og dregið úr líkum á hjartaáfalli og krabbameini um allt að 82%. Sem sagt skyndibiti sem gerir þér gott!
Okkur á Serrano er annt um að gefa viðskiptavinum okkar sem bestar upplýsingar um matinn okkar. Fyrir þá sem eru með mataróþol þá eru þessar upplýsingar mjög mikilvægar.
Þar sem að allur maturinn er afgreiddur úr sameiginlegu borði þá er alltaf hætta á krossmengun.
Upplýsingar um fæðuóþol (PDF)
Maturinn okkar á Serrano er frábær bæði fyrir grænmetisætur, sem og vegan. Hér að neðan getur þú séð hvaða réttir henta þeim sem eru grænmetisætur eða vegan.
Þar sem að allur maturinn er afgreiddur úr sameiginlegu borði þá er alltaf hætta á krossmengun á milli rétta. Við gerum okkar besta til að forðast slíkt.
Hentar hvorki grænmetisætum né vegan
Kjúklingur
Nautahakk
Nautakjöt
Satay Hnetusósa
Hentar grænmetisætum
Ostur
Feta ostur
Sýrður rjómi
Ostasósa
Tzatziki Jógúrt Sósa
Hentar grænmetisætum og vegan
Tortilla
Heilhveiti Tortilla
Hrísgrjón
Steikt grænmeti
Maís
Svartar baunir
Pinto baunir
Fersk Pico de Gallo salsa (mild)
Salsa Roja (miðlungs sterk)
Salsa Picante (sterk)
Kál
Nachos
JalapeƱos
Guacamole
BBQ sósa

Serrano býður uppá ljúffenga burrito bakka, sem henta vel á fundi og í veislur. Bakkarnir samanstanda af 12
burrito bitum, nachos flögum og salsa sósum eða guacamole. Hentugt fyrir 6-10 manns
Hægt er að fá bakkana í 5 mismunandi útgáfum og einnig er hægt að blanda tveimur tegundum af burrito á hvern bakka.
Hægt er að panta veislubakka með því að hringja í síma 552-7700. Vinsamlegast athugið að það getur tekið allt að 90 mínútum að útbúa bakkana. Fyrir fleiri en 5 bakka er nauðsynlegt að hringja daginn áður en pöntunin er sótt. Við bjóðum ekki uppá heimsendingu.
BBQ Bakki: 5.490 kr.
Kjúklingur, Hrísgrjón, Svartar Baunir, Pico de Gallo Salsa, Maís, BBQ Sósa, Muldar Nachos flögur og Sýrður Rjómi
Fajitas Bakki: 5.490 kr.
Kjúklingur, Hrísgrjón, Pico de Gallo Salsa, Steikt Grænmeti, Maís, Ostur og Sýrður Rjómi
Salsa Bakki: 5.490 kr.
Kjúklingur, Hrísgrjón, Medium Salsa, Steikt Grænmeti, Maís, Ostur og Sýrður Rjómi
Thai Bakki: 5.490 kr.
Hrísgrjón, Kjúklingur, Satay Sósa, Hvítkál, Bambus, laukur, vorlaukur, Pico de Gallo Salsa
Grískur Bakki: 5.490 kr.
Hrísgrjón, Kjúklingur, Steikt Grænmeti, Maís, Kál, Pico de Gallo Salsa, Feta Ostur Tzatziki Sósa
Einnig seljum við 2 lítra gos (Pepsi, Pepsi Max, Sítronu Kristal og Appelsín) og glös fylgja með.

Serrano býður uppá burrito bar fyrir minni og stærri veislur. Barinn inniheldur tortillur, úrval af kjöti, baunum, hrísgrjónum, grænmeti og sósum. Hver og einn getur útbúið sinn fullkomna burrito. Hentar fyrir 15 eða fleiri.
Hringdu og pantaðu burrito bar í síma 552-7700. Nauðsynlegt er að panta með minnst eins dags fyrirvara. Einungis er boðið uppá heimsendingu ef pantað er fyrir 30 eða fleiri.
Verð: 1.450 kr á mann
Lágmark 15 manns.